Vildi vekja athygli á því að nú er vetrarstarfið hafið hjá Ármanni. Byrjendatímar fyrir fullorðnar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 19:00-20:30 en fyrir börn á þriðjudögum og fimtudögum kl 16:30-17:30.
Fyrstu tvær vikurnar eru fríar!

Það er aldrei of seint að byrja í taekwondo, hjá okkur er algengt að byrjendur séu á aldrinum 20-35 ára svo það er um að gera að kíkja á okkur.

Við erum staðsett í Ármannsheimilinu í Laugardal, Engjavegi 7.

Frekari upplýsingar um Ármann og taekwondo er að finna undir taekwondo á heimasíðu Ármanns www.armenningar.is