Wrestling
þegar pro wrestlers eru að berjast, hvaða bardagaaðferð eru þeir að nota?
Pro. Wrestling er hluti af bardagaíþróttargeiranum sama hvort ykkur hérna á huga áhugamálinu líkar það betur eða verr.
Og ef þið mynduð nú nenna að horfa á eina sýningu og í staðinn fyrir að horfa á hversu mikið feik þetta er hjá þeim og frekar fylgjast með hvað þeir eru að gera inn í hringnum þá munduð þið sjá fullt af alvöru lásum og brögðum sem notaðar eru í pro. wrestling sem eru þau sömu og eru notuð í öðrum bardagagreinum.
Þið eru að banna Pro. Wrestling hérna einmitt út af fáfróðsku.Eina fáfræðin sem ég sé hér er íslensku kunnáttan hjá þér ;)
ALLT Prowrestling byggir fyrst og fremst á því að þykjast vera, og geta, eitthvað sem þú ert ekki.
Þú ert algerlega að vanmeta hversu svakalega yfirgnæfandi meirihluti bardagalistamanna hatar prowrestling af lífi og sál.
En þeir sem stunda Pro. Wrestling æfa sig ekkert minna en þeir sem æfa annað form að bardagalistum.Nei, ekki frekar en þeir sem æfa hjólreiðar, fimleika og svo margt annað. En þeir eru bara ekki að æfa bardagalistir og það eru Pro. Wrestling sterabúntin ekki heldur.
Og ef þið mynduð nú nenna að horfa á eina sýningu og í staðinn fyrir að horfa á hversu mikið feik þetta er hjá þeim og frekar fylgjast með hvað þeir eru að gera inn í hringnum þá munduð þið sjá fullt af alvöru lásum og brögðum sem notaðar eru í pro. wrestling sem eru þau sömu og eru notuð í öðrum bardagagreinum.
Léleg spörk, léleg högg, slappir lásar og fastatök sem líta ekki einu sinni út fyrir að geta haldið mús.
Það var t.d að koma í ljós að húsið hans Chris Benoit, sem myrti fjölskylduna sína og hengdi sjálfan sig um daginn, var sneisafullt af verkjalyfjum, og að læknir í nágrenninu hafði skrifað upp á lyfseðla fyrir anabólíska stera í langan tíma fyrir Benoit, og magnið var svo mikið að jafnvel hörðustu aðdáendum blöskraði. Annaðhvort var Benoit að endurselja stöffið sitt, eða hann notaði c.a 2 ára skammt af sterum Í HVERJUM MÁNUÐI!!!