Já, spampóst. Þessi síðan þín, sem þú vísar á, er auðvitað vandræðalega légleg. Þú gætir þess vegna bara sent póst á alla og sagt þeim að hafa bara samband við þig í síma eða eitthvað og beðið þig að redda sér vörum. Því í ósköpunum ættum menn sem eru hér og þekkja bardagalista að þurfa þína hjálp við að útvega sér boxdót eða eitthvað annað. Það er ekkert slíkt til sölu á síðunni þinni, eða hvað maður á svo sem að kalla þennan óskapnað sem þú vísar á. Ef þú hefur ekkert um bardagalistir að segja, annað en þú getir auðvitað reddað mönnum því sem þeir geta bara reddað sér sjálfir, þá áttu ekkert erindi hér. Þetta er spjallborð um Bardagalistir. Ekki markaðstorg fyrir allt og ekkert… aðallega ekkert. Get it?