Ja, það færi nú kannski aðeins eftir reglunum sem keppt væri eftir. Ef við erum að tala um MMA þá myndi ég eðlilega veðja á Fedor, eins og reyndar gegn hvaða einstaklingi sem er í þeim geira. En maður skyldi nú ekki vanmeta Tyson … höggþyngri maður þekkist varla og þó einkalífið hafi heldur betur farið í vaskinn hjá karli þá er hann alltaf hættulegur í hringnum.