Slæmar fréttir af Árna Ísaks
Því miður mun Árni ekki geta keppt þann 9. desember þar sem hann varð fyrir meiðslum í hné og þarf að fara í aðgerð. Þetta er auðvitað mikið áfall, bæði fyrir hann og allan hans stuðningsmenn. Það þarf samt enginn að efast um að harðjaxlinn Árni mun ekki láta þetta stoppa sig neitt og koma tvíefldur til baka á nýju ári þegar hann hefur náð sér af meiðslunum.