Svona til að rifja aðeins upp það sem ég sagði á sínum tíma á Mjölnisþræðinum um Guðna þá hann var með Turtle Kung Fu-ið sitt og FUJUKADO-ið í Mörkinni þegar ég var að æfa þar með Viðari Guðjonsen fyrrverandi Ólympíufara í júdó. Viddi á þennan stað (íbúðarhótel með æfingasal í kjallararnum) og við vorum eitthvað að boxa þarna og glíma fyrir 10 árum eða svo (réttarar Viddi var að boxa og glíma, og ég var að reyna að halda lífi).
Þá var sem sagt “snillingurinn” Guðni þarna. Hann var auðvitað alltaf með svarta beltið um sig miðjan, enda 10. dan í FUJUKADO! Guðni greyið var álíka mikill bardagamaður og kiðfætt rolla með riðuveiki en það er annað mál. Hann var sem sagt Über-Sensei þarna yfir einhverjum hóp og þeir sem æfðu hjá honum voru margir komnir með hin og þessi viðurnefnið, The Raven, Tiger og ég veit ekki hvað. Auðvitað gat svo enginn neitt, og hann var lélegastur allra.
Síðan setti hann upp þennan lífvarðaskóla og þóttist hafa verið lífvörður um allan heim. Var meðal annars í útvarpsviðtali þar sem hann fullyrti þetta og sagðist hafa starfað fyrir fjölda heimsfrægra manna. Þegar hann var síðan beðinn að nefna eins og einn eða tvo kom babb í bátinn en þá sagðist hann bara ekki mega segja það, það væri trúnaðarmál.
Ef minni mitt brestur ekki þá voru þeir, þ.e. hann og nemendur hans í lífvörslunni, síðan teknir á einhverjum ofsahraða út á Seltjarnarnesi eða einhvers staðar í fjáranum á einhverri eldgamalli bíldruslu. Gott og vel ef hún var ekki óskoðuð í þokkabót en ég man þetta nú ekki glöggt. Þeir skyldu svo auðvitað ekkert í skilningsleysi löggunnar á því að þetta væri virðulegur lífvarðarskóli Guðna að æfa High Speed Getaway!!!
Guðni er auðvitað bara svikahrappur og loddari og hefur ekkert á bak við sig í neinu, eins og ég býst við að hver heilvita maður sjái sem skoðar þessar “heilögu” síðu hans.