Nei, sennilega verður ekkert af þessum bardaga. Allavega ekki í bili.
Í stað herma fregnir núna að þeir Chuck Liddell og Tito Ortiz muni mætast í UFC 66 þann 30. desember.
Samkvæmt MMA Weekly lenti þeim Jerry Millen (umboðsmanni PRIDE í USA) og Dana White (UFC einvaldi) saman í útvarpsviðtali við þann fyrrnefnda þar sem Dana var einn þeirra sem hringdi inn. Þar mun ýmislegt hafa gengið á en að svo virðist sem það hafi verið Dana White sem hafi aflýst bardaganum eftir að CroCop sparkaði Silva yfir í annað sólkerfi í síðasta PRIDE bardaga. Dana kallaði m.a. Millen vangefinn og ýmislegt annað miður professional fór þeirra á milli. Þeir sem vilja lesa það geta skoða frétt um þetta á MMA Weekly.
Hér er fréttin:
http://www.mmaweekly.com/absolutenm/templates/dailynews.asp?articleid=2697&zoneid=13