Hvað er samt málið með það að kærusturnar séu alltaf að toga og halda í kærastann sinn á meðan slagsmálum stendur?
Hef sé allavega tvö slagsmál sem aðilar sem ég þekki lentu í þar sem ráðist var á kunningja/félaga mína af fleirri en einum aðila og á meðan héngu kærusturnar á þeim toooogandi og veinandi í kærastanum eins og þær væru hreinlega að hjálpa árásarmönnunum að berja þá :D
Ég meina þetta lítur hálf kjánalega út þegar menn eru í fullu basli með að verja sig þá bætir ekki á að kærastan hangi á bakinu líka. Sérstaklega þarsem þú hefur ekkert val eða tækifæri á að labba í burtu!
Hvað ætli þessir rónar hafi gert við td þennan gaur ef þeir hefðu náð honum niður? Þeir elltu hann allavega uppi í lok myndbandsins.
Ekki miskilja mig að ég sé að verja eða sé eitthvað gefin fyrir slagsmál því ég er það ekki! En ef þú lendir í þeirri aðstöðu að þú þurfir að verja þig þá er það síðasta sem þú þarft á að halda er að einhver sé að toga í þig meðan þú ert að verjast/countera högg sem dynja á þér.