Sælir allir,
Nú hef ég reynt þónokkuð að finna leiðir - aðrar enn þá einfaldlega panta þetta (12 OZ karate/jiu jutsu) á netinu - en ég hef ekki enn fundið verslanir á Íslandi sem virðast selja svarta Gi. Hinsvegar er hægt að finna/kaupa svona búninga í gegnum þær vefverslanir sem eru gefnar hér á Huga og virðast þær nokkuð ódýrar ef eitthvað er…
Nú vildi ég vara fólk við kaupum á ‘Ninja Gi’ (með tilgangslausri hettu og of litlum vösum) þar sem þeir eru hið versta drasl og rifna við fyrstu átök…
Að lokum; er það einnig hið minnsta mál að kaupa sér bara hvítan Gi og lita hann svartan með sérstökum fatalitum (fást í næstu efnabúð)…
Allavega, þá vonast ég til að sjá eitthvað af fólki í lituðum Gi nú í september, hvort sem það sé svart, grátt, dökkblátt eða jafnvel brúnt (allt vel gildir ninja litir)… En að öðru leyti - svo ég láti nú dæluna ganga - mætti alveg eins hafa hvítt sem vetrarlit þar sem þetta er nú einu sinni Ísland…
Kveðja,
Diðrik/Nekron