Alltaf þegar ég er tekinn í hálstak í gannislögum þá missi ég allann máttinn og get ekki gert rassgat.Hvernig getur maður snúið sig útúr hálstökum eða losnað?
Það er stranglega bannað í pride/ufc að rífa í pung, brjóta putta, bíta og pota í augu. EN þú getur reynt ef hann er að taka þig í hálstak standandi að reyna grípa í fótin á honum og reyna taka takedown.
einfalt sláðu viðkomandi meðflötum lófa þarf helst að vera fast, það kemur óvænt á hann og hann mun kippast aftur og missa allt jafnvægi svo eftir það it's up to you, það virkar alltaf
Þú hefur ekkert vogarafl til að slá andstæðinginn nógu fast frá þessari stöðu til að fá hann til að sleppa. Og auðvitað býst hann við að vera sleginn. Hann reynir bara að kreista hausinn þinn fastar en þú slærð.
Hins vegar er svona hálstak alveg ömurlegt bragð sem mjög margir nota … ÁÐUR en þeir læra að slást - síðan hætta þeir að nota þetta vitleysisbragð.
En það að vera að slá eitthvað eins og kelling úr þessarri stöðu er algjört rugl.
Frame-a hálsinn með höndunum, shrimpa út og sveifla löpp yfir haus. Blanda því saman við að rykkja olnboganum undir þig, koma þér á hnéin í góðu beisi, stökka yfir hann og komast ofan á.
En í alvörunni talað, æfðu hjá okkur í ca. 3 mánuði og farðu svo aftur í gamnislag við vini þína. Þú munt leika þér að þeim. Nema ef þú ert 6 ára og þeir 19 ára. ;)
Ef að hann er fyrir aftan þig og er t.d. með vinstri hendi vafða um hálsinn á þér skaltu nota þína vinstri til að grípa um hnakkan á honum og þrýsta hausnum á honum niður á við og notaðu hægri til að reyna ýta vinstri hendinni hans í burtu frá þér og þá ættiru að geta komið þér fyrir aftan hann og ef þetta heppnast vel ættiru að vera í góðum málum fyrir aftan hann með tak á vinstri höndinni hans.
Tad er satt ad segja sart ad lesa sum commentin herna. Pota i augun…sla hann med flotum lofa…. please, ekki vera ad tja ykkur um eitthvad sem tid haldid ad virki.
Maettu bara a aefingu hja Mjolni og biddu einhvern um ad syna ter hvernig tu att ad losna ur tessu taki. Jon Gunnar lysti tvi nokkud vel. Tad getur verid saraeinfalt (ekki alltaf taegilegt samt) ad losna ur tessu taki.
Ef við erum að tala um í gamnislag þá viltu væntanlega ekki meiða vini þína svo þú ferð væntanlega ekki að gera eins og einhver sagði og ráðast á augun í honum eða punginn.
En ertu að tala um standandi eða á jörðinni? Og svo fer það örugglega eitthvað eftir stærð og þyngd á vini þínum hvað er best að gera til að losna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..