Þetta er grimmt ofbeldi í sinni hráustu mynd og höfðar einfaldlega til lægstu hvata mannsins.
Samt ef maður pælir í því, þá er eini munurinn á þessu og PrideFC/UFC sá að það eru engar “ring girls” í þessu og dómarinn í þessu stoppar bardagann a.m.k. 10sec of seint.
Maður skammast sín stundum fyrir að horfa á þessar keppnir og fíla þær.
Þetta er ástæðan fyrir því að mér finnst skemmtilegra að sjá flotta lása í þessum keppnum, frekar en einhverja brútal olboga framan í andlitið á andstæðingnum(UFC) á meðan honum er haldið pikkföstum á bakinu. Já eða að sjá brútal hné í jörðinni í PrideFC (Mark Coleman VS. Igor Vovchanchyn). Finnst að það mætti sleppa slíkum sóðaskap.
“True words are never spoken”