Myndi kannski ekki segja nýbyrjaðu en nýlega jú, 6 eða 7 mánuðir. Hef lítið verið að fylgjast með UFC, aðallega Pride. Þar sá ég Josh Barnett fyrst og mér fannst hann já asnalegur (var sennilega Pride 30 þar hann keppti á móti CroCop ég bara mundi það ekki), bara ekkert gaman að fylgjast með honum þannig að fyrstu kynni mín af honum voru bara ekkert spes þannig að ég nennti ekkert að vera að kynna mér sögu hans betur, vissi að hann kæmi úr UFC en ekki að hann hefði verið þungaviktameistari.
En seinasti bardaginn hans á móti Nakumura fannst mér mjög skemmtilegur og eftir hann hækkaði álit mitt á honum, mér fannst mjög skemmtilegt að horfa á þennan bardaga og Josh kom mér verulega á óvart í honum.
En hvað með það þótt að hann sé legend? Getur hann ekki alveg eins verið asnalegur í haus einhvers?