Vá, ég veit ekki hvað ég á að segja varðandi það að hann sé fífl en ástæðan fyrir því að hann er að lýsa þessu er örugglega sú að hann er einn af frægustu celebunum sem hafa haft mikinn brennandi áhuga á MMA þó hann sé kannski ekki sá frægasti. Ofan á það þá er hann víst ágætur grínisti og síðan má ekki gleyma því að hann hefur bak við sig meistaratitil í opna ameríska Tae Kwon Doe mótinu (man ekki hvaða ár) er með svart belti í þeirri list ásamt því að hafa kennt þá list lengi vel.
Hann hefur einnig fjólubláa beltið í Brasilísku Jiu Jitsu undir Eddie Bravo þannig að hann hefur allaveganna grunnþekkingu á striking og grappling sjónahorninu í blönduðum baradagaíþróttum.
Ætli allir þessir hlutir komi ekki saman.
Sem grínisti hefur hann reynslu í því að koma fram og tala fyrir framan fólk þannig að það ætti að hjálpa honum við að vera mælskur og skýrmæltur í sjónvarpi í beinni. Hann hefur ágætis “exposure” fyrir utan íþróttina til að laða hugsanlega að fólk sem veit ekki hvað blandaðar baradagaíþróttir eru og síðast en ekki síst þá hefur hann góða þekkingu á því hvað spark, kýling og grappling er.
Ætli það svari ekki spurningunni þinni.
Rock on.
Greatness.