Fyrir þá sem vilja mæta í kvöld, þá er mæting klukkan 20:00.
Ef þið missið af þessum fyrsta tíma þá er það allt í lagi, komiði bara nokkrum dögum seinna. Byrjendakennsluefnið verður endurtekið aftur og aftur.
Fyrir þá sem eru kannski að spá eitthvað í bakgrunni Mjölnis, þá má geta þess að við erum skráð “útibú” fyrir eitt þekktasta BJJ/MMA félag í heiminum, “Straight Blast Gym” (www.straightblastgym.com) og erum með kennsluréttindi frá þeim. Það er líka planið að fá til okkar nokkra erlenda kennara frá Straight Blast Gym í Bandaríkjunum til að halda æfingarbúðir snemma á árinu. Ef ykkur langar til að prufa hvernig það er að glíma við svartbelting í brasilísku Jiu Jitsu og læra frá honum, þá er sá tími gott tækifæri til þess.
Ef eitthvað er óljóst, tékkiði þá á www.mjolnir.is eða hringið í þjálfarana. Símanúmerin eiga að vera hér:
http://www.mjolnir.is/stundaskra.htmlAthugið að Arnar þjálfari er reyndar erlendis í augnablikinu, en ég, Jón Viðar og Bjarni erum tilbúnir að svara öllum spurningum. Svo sjáumust við hress og kát á æfingu.