Ég lenti í því að náungi var að mana mig upp í slag, þetta var á bjórkvöldi og við báðir góðir í því. Þetta var þannig að gaurinn var eitthvað að reyna fá mig til að koma í slag. Hann var frekar góður með sig þar sem ég er frekar lítill (179 cm) og ekki sérstaklaga vöðvamikill og hann var svona 8 cm stærri en ég og þykkur. Hann var með eitthvað bögg og var býsna rólegur þótt hann hafi var að kalla mig illum nöfnum, ætlaði ekkert gera neitt í þessu, síðan slær hann í hausinn á mér, ekkert sérstaklega fast, nóg til að starta mér.
Ég rétti vini mínum (sem var með uppljómuð augu eins og 8 ára stelpa á aðfangadagskvöld, enda bjóst hann við því að ég myndi gera eitthvað) glasið sem ég hélt á og gleraugun mín. ég sný mér svo að gaurnum ( hann var kominn fyrir aftan mig), tek hann í kast sem heitir head hip and knee, og hann lendir í jörðunni og ég lendi í svona venjulegri júdó stöðu, hann grípur um hálsinn á mér, ég var býsna rólegur, þótt hann væri að kyrkja mig. Ég færi síðan rólega vinstri höndina á honum í milli lappana á mér og hina pinna ég niður með hægri, kallast double arm lock ef það segir ykkur eitthvað, ég útskýri svo fyrir manninum sem var býsna æstur að það væri enginn tilviljun að ég sé kominn með svona yfirburðastöðu og ef hann slappar ekki af þá væri það lítið mál fyrir mig að berja hann með vinstri höndinni minni sem væri laus, meðan hann væri fastur og gæti ekki hreyft sig.
Þannig hljómar sagan mín, ég er æfa jiu jitsu (japanska)