Ég er sammála goorka um að þú eigir ekki að láta fólk á netinu segja þér hvað þú eigir að gera - prufaðu það sem þú heldur að komi til greina og veldu. Þú finnur það best sjálf.
Varúð - sannleikurinn á það til að birtast í gólfglímu, hvort sem hann heitir armbar eða Illuminati ;) Já, ég hef lesið eitthvað af greinum þínum á huga. Þú ert að leita að einhverju, hvort sem þú veist það eða ekki. Punktur, basta. Kannski að þú finnir það í brasilísku Jú Jitú. Persónulega held ég að þú eigir eftir að fíla það. Ég þori að veðja einum köldum Víking upp á það.
En..
Eftirfarandi komment gildir fyrir alla: Ef þú getur ekki kyngt egóinu þínu, kyngir egóið þitt þér. Komdu til okkar í Mjölni (prufaðu Pumping Iron líka) með opnu hugarfari og það verður tekið vel á móti þér. Vertu tilbúin að vera kyrkt, smurð á gólfið, snúið upp á handleggina og fætur, kýld í andlitið og ef þú stendur uppi með bros á vör hlakka ég til að æfa með þér og hananú. (Athugaðu að ég er ekki að tala um þú eigir eftir að slasa þig.)
En komdu fyrir þá ástæðu að æfa ofbeldi og þá geturðu verið annarsstaðar. Hefurðu það sem þarf? Ég kýs að segja hlutina svona hreint út vegna þess að ég held að þú viljir hafa það þannig og þurfir hafa það þannig. No hard feelings.
Takk fyrir mig og einn kaldann Total Viking takk!
Kv.
Jón Gunnar,
www.mjolnir.is