Er þetta myndbandið þar sem Travis Fulton slammar gaurnum nánast í gegnum mottuna? Brilljant.
Kennir manni að hanga ekki í gagnslausum headlock sem að er ekki að gera neitt. TKD gaurinn hélt örugglega að hann væri í fínum málum…..hann ríghélt í Fulton alltof alltof lengi.
Hann er ekki að öskra af sársauka, hann er að garga af því að hann fékk svo mikið högg á mænuna og heilann að hann fór í hálfgert flogakast, fann ekki fyrir útlimunum sem að spössuðu bara eitthvað út í loftið.
Hann má þakka fyrir að dýnan var mjúk. Ef þetta hefði verið gangstétt þá hefði hann steindrepist.
MMA= Mixed Martial Arts. Menn sem að þjálfa hluta úr ýmsum bardagalistum sem að hafa sannað sig í hringnum til að vera vel rúnnaðir. Notað yfir keppnir eins og UFC og Pride sem að leyfa bæði högg og spörk og gólfglímu.
Einu sinni vorum við með taekwondo sýningu fyrir fullt af fólki og ég og annars strákur vorum að enda við að sparka í hvorn annan á fullu í brynjum og með hjálma og allt. Þá heyrist í einhverri mömmu með tvo krakka….“Nei sko krakkar…sjáiði júdó mennina”.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..