Myndi segja að það væri mjög margt sem væri verra en TKD. TKD er kannski ekki kannski ekki raunverulegt að því leiti að þeir leyfa ekki kýlingar í höfuðið, en þeir sparra og fá einhverja tilfinningu fyrir bardaga. Eru mjög margar “dauðar” bardagaíþróttir sem æfa ekkert sparring, ég myndi segja að þær, umfram allar aðrar, væru verri til að geta varið sig. Nú þekki ég ekki einstakar íþróttir það vel að ég þori að dæma þær, en “dauðar” íþróttir eru svo gott sem gagnslausar þegar kemur að því að verja sig (þó þær geti verið nytsamlegar til annars, eins og að komast í form etc).