OK. Yfirleitt er ég ekkert að hrauna neitt mikið yfir bardagalistir sem að ég æfi ekki, læt þær bara í friði eða ræði kosti þeirra og galla í rólegheitum. En Wing Tsun er svo mikið endemis bull og þvæla að annað eins hef ég bara ekki séð, og get ég ekki lengur orða bundist um nákvæmlega hversu lélegt það er.
Wing Tsun er e.k afbrigði af Wing Chun Kung Fu sem að einhverra hluta vegna er orðið afar vinsælt í Þýskalandi(go figure). Það er, eins og flest öll afbrigði Kung Fu ekki lifandi bardagalist, þannig að sparring er í algeru lágmarki og menn æfa dauð munstur, ákveðin viðbrögð við ákveðnu áreiti.
Svosem allt í lagi NEMA hvað þeir telja sig geta kennt þér að verjast ekki bara einum árásaraðila heldur tveimur, þremur, mönnum með flöskur, kylfur, sverð, hnífa, skotvopn o.s.frv…..hver heilvita maður sem einhverntíman hefur þurft að takast á við einhvern sem streitist á móti, þó ekki nema í gamnislag, og rennir í gegnum vídeoin sem að eru til sýnist á síðunni www.ewto.com sér undireins að hér er í gangi ein allsherjar matrix-asíu-crouching-tiger-hidden-dragon-rúnkfantasía. Þessi Leung Ting gaur fær menn til að “ráðast” á sig úr ýmsum áttum(en samt bara úr fyrirfram ákveðnum áttum) og svo um leið og hann snertir þá þá verða þeir að spaghettíi í höndunum á honum. Ekki útaf því að hann er svo góður, heldur þá einfaldlega lyppast þeir niður ÁÐUR en að lásinn/kastið/whatever er farið í gang, af þeirri einföldu ástæðu að sýningin gengi bara ekki upp öðruvísi. ÞETTA VIRKAR EKKI ÁN SAMVINNU ANDSTÆÐINGSINS. Og hvenær réðst maður á mann síðast án þess að streitast á móti?
Þegar menn reyna að telja fólki trú um að geta kennt þein vörn gegn mjög hættulegum árásum, t.d gegn vopnum þá eru menn komnir út á mjög hálan ís. Margt sem ég hef séð í minni yfirferð um www.ewto.com er beinlínis hættulegt og tel ég að menn væru betur settir með ENGA bardagalistareyndslu frekar en að reyna að nota þau brögð sem hér er verið að sýna. Menn geta tekið mjög svo rangar ákvarðanir við aðstæður upp á líf og dauða útaf því að þeir tóku þessa menn trúanlega.
Nokkur eðaldæmi af þessari mjög svo súru síðu: ATH! Utanlands download.
Leung Ting sýnir vörn gegn handleggslás aftanfrá.
http://www.wingtsunwelt.com/german/videos/media/ggm/leungting_03.mpgVörn gegn kyrkingu standandi.
http://www.wingtsunwelt.com/german/videos/media/ggm/leungting_01.mpgViðbrögð gegn árás með kylfu. Greinilega gert ráð fyrir að viðkomandi sé hreyfihamlaður mongólíti með lélegt fjarlægðarskyn.
http://www.wingtsunwelt.com/german/videos/media/ggm/leungting_06.mpgÞetta á víst að vera vörn gegn árás með bjórflösku, en….nei ég ætla ekki einu sinni að reyna að gera grín að þessu, þetta video dæmir sig algerlega sjálft.
http://www.wingtsunwelt.com/german/videos/media/ggm/leungting_07.mpgVörn gegn tveimur “árásarmönnum”. Þessir árásarmenn virðast vera undir áhrifum kannabisefna, eða hugsanlega industrial-strength valíum.
http://www.wingtsunwelt.com/german/videos/media/ggm/leungting_10.mpgwww.ewto.com er snilldarsíða ef þú vilt kanna nákvæmlega hverju lágt bardagalistir geta lagst í hræsni, óraunveruleika og peningaplokki. Mér verður nánast óglatt við tilhugsunina um að þetta drasl sé hugsanlega á leiðinni til landsins.