Ef að aikido reynir ekki á þig líkamlega þá er það vegna þess að þú leggur þig ekki nógu mikið fram. Aikido er frekar tæknilegt og því eru þeir sem eru skammt á veg komnir oft uppteknari af tæknilegum pælingum frekar en líkamlegri áreynslu. Aikido er þess eðlis að hægt er að stýra því hvað viðkomandi reynir mikið á sig. Þeir sem eru vakandi og “á staðnum” geta auðveldlega reynt mikið á sig, en það er enginn sem rekur þig í það nema þú sjálfur.
Y