Mjög heimskulegur þráður hjá þér!
Ef að þú ert að tala um það sem ég held að þú sért að tala um, þá var Reynir einhverntíma að keppa í Vale Tudo, ekki “valle tutto”, í Danmörku. Mér skilst að hann hafi unnið einhverja bardaga og tapað einhverjum, eins og kemur fyrir nær alla.
Mér skilst einnig að hann hafi staðið sig mjög vel og að hvorki hann né aðrir í þessarri keppni hafið verið neitt sérstaklega “lamdir”, því þetta er íþrótt, þó að þú sjáir það kannski ekki vegna þess að þú hefur ekki kynnt þér hana nógu vel.
Ég hef hitt Reyni einu sinni eða tvisvar og hann virtist vera mjög fínn strákur. Ég hef líka heyrt það sama frá fullt af öðru fólki.
Jón Gunnar.