Menn mega glíma í galla eða stuttbuxum og bol, allt eftir smekk, það má ekki læsa fingrum og úlnliðum, en hné, ökklar, olnbogar, axlir og náttúrulega hengingartök eru lögleg. Reyndar eru nokkrir lásar sem við mælum með að byrjendur láti vera, þar á meðal heel-hook, toe hold og allir hálslásar sem eru ekki hengingar. Heel-hook og toe hold eru þeim leiðinlega eiginleika búin að það er ekkert rosalega sárt að vera í þeim fyrr en krossböndin slitna. Þessvegna tappa byrjendur oft ekki fyrr en það er of seint. Hálslásar eru hættulegir vegna þess að þeir sem eru að byrja glíma oft af miklum krafti og geta slasað eða jafnvel lamað andstæðinginn.
Það má segja að BJJ byrji á öfugum enda miðað við Judo, þ.e menn byrja að læra nánast 100% gólfglímu og þegar menn verða betri og betri í henni þá fara menn að stúdera köst. BJJ er einstaklega hentugt fyrir þá sem hafa rústað á sér hnjánum í Judo þar sem yfirleitt byrjum við á hnjánum og glímum þaðan.
Láttu endilega sjá þig!