Ekki eins og þessi sapp hlunkur kunni mikið að sparka og eins og ég hef séð hann boxa (þung slow motion högg) þá á tyson eftir að rota hann leikandi létt í fyrstu lotu. Þið verðið að hafa í huga að það er ekki eins og tyson hafi aldrei lent í stórum hrikalegum gaurum áður. Sá eini þeirra sem hefur haft eitthvað í hann var lennox lewis núverandi heimsmeistari. Sapp er stór og ferlegur uxi en samt bara fyrrverandi ruðningskall sem fór að slást af því hann er stór. Svoleiðis menn eiga ekki séns í tyson og tyson myndi örugglega gera það gott í mma á móti sumum allavega. Menn eins og Igor vovnachinchinchin sem stóla á læti ofar tækni munu falla léttilega fyrir honum. Ég hef líka lúmskan grun um að tyson kunni nú alveg fleira fyrir sér en hreina boxtækni. Spyrjið bara holyfield. Ég væri allavega vel til í að sjá Tyson keppa í einhverri mma grein.