Sæll,
Þú gætir ath. Sportbúð Kópavogs. Þeir hafa átt ágæta galla fyrir krakka á undir 4000,- Gallar fyrir krakka þurfa ekki að vera verulega vandaðir, þau vaxa fljótt upp úr þeim auk þess sem þau eru ekki í neinum átökum sem reyna á gallana.
Passaðu bara að þeir hlaupa á nokkrum þvottum, ca.10%, svo ekki kaupa hann of lítinn. Ágætis viðmið er svuntan á jakkanum, ætti að ná rúmlega niður á mið læri þegar þú kaupir hann. Svo á ekki að þvo þá á of miklum hita. Það fer bæði illa með efnið og hann hleypur óþarflega mikið. Ef buxurnar eru of síðar eftir nokkra þvotta þá skaltu stytta þær. Það er mjög óþægilegt fyrir stelpuna að þurfa bretta mikið upp á þær. Passaðu líka að stytta beltið ef það er of langt, annars slæst það í andlitið þegar hún æfir spörk.
Kveðja,
MKE.