Haraldur Óli Ólafsson, Fjölni vann –78 kg flokk unglinga þar sem hann mætti reyndar öðrum Fjölnismanni, Svavari Jóni Bjarnasyni í úrslitum. Arnar Snær Valmundsson, Fjölni hlaut brons í –59 kg flokki unglinga, Nökkvi Þór Matthíasson, Keflavík silfur í –51 kg flokki unglinga og Þorri Birgir Þorsteinsson, Fjölni brons í sama flokki. Freyr Magnússon, Fjölni hlaut brons í –67 kg flokki fullorðinna eftir harðan bardaga í undanúrslitum. Hergeir Rúnarsson, Keflavík hlaut brons í –45 kg flokki unglinga.
Fyrir hópnum fór Sigursteinn Snorrason yfirkennari Fjölnis og Keflavík og var hann ánægður með árangurinn á þessu sterka móti.
Stjórnandi á