Suður-Kórea heitir Lýðveldið Suður-Kórea (Taehan Min’guk). Heildarflatarmál landsins er u.þ.b. 99.274 km² og það nær yfir u.þ.b. 45% Kóreuskagans. Höfuðborg landsins er Seoul. Bæði Kóreuríkin eru á Kóreuskaga út úr austanverðu meginlandi Asíu. Hann er söguleg brú og jafnframt dempari milli Japans og Kína. Skaganum var skipt milli Norður- og Suður-Kóreu um 38°N breiddarbauginn eftir að vopnahlé var samið í Kóreustríðinu árið 1953. Norður-Kórea er kommúnískt alþýðulýðveldi. Þessi ríki eru aðskilin vegna gjörólíkra stjórnmála- og efnahagskerfa og beizkju eftir stríðið. Íbúar beggja ríkjanna eiga sér sameiginlega menningu og líta á sig sem eina þjóð. Merki stríðsins eru enn þá fyrir hendi, þótt mikið hafi verið byggt upp síðan því lauk. Útgjöld til hermála beggja ríkja eru mikil og þau eru bæði háð erlendri efnahagsaðstoð. Efnahagslíf beggja er óstöðugt. Breytingar lífsmunsturs íbúanna í nútímaátt valda líka talsverðum árekstrum.


Kóreuríkin eru að mestu á Kóreuskaganum milli Japanshafs í austri og Gulahafs í vestri. Norður-Kórea nær talsvert inn á meginlandið. Milli ríkjanna er hlutlaust svæði, sem kveðið er á um í vopnahléssamningi þeirra. Það er u.þ.b. 67 km breitt austast og 33 km vestast. Kóreuskaginn er u.þ.b. 863 km langur frá norðaustri til suðvesturs og breiðastur er hann 248 km. Suður-Kórea er umlukin hafi nema til norðurs, þar sem landamærin skilja ríkið frá Norður-Kóreu. Norður-Kórea á landamæri að Suður-Kóreu í suðri, Kína í norðvestri og snertir landamæri Rússlands norðaustast. Aðaleyjar Japans eru u.þ.b. 200 km handan Kóreusunds. Heildarflatarmál Kóreuskagans er u.þ.b. 220.896 km². Heildaríbúafjöldi beggja ríkjanna er u.þ.b. 65 milljónir (43 milljónir í S.-Kóreu). Suður-Kórea er meðal þéttbýlustu landa heims.
Stjórnandi á