Mynd sem ég tók á Midas Pro Training course í gær. Fjórir Midas Pro9 (sem komu allir úr Hörpu). Það voru reyndar bara tveir þeirra fulltengdir, tveir voru bara control surfacið (engir DSP og engin input module) því það var búið að installa meirihlutanum í Hörpu.
Námskeiðið var mjög fræðandi og skemmtilegt, ekki bara um Pro línuna, heldur bara Midas yfir höfuð, og hvernig þróunarferlið hjá þeim gengur fyrir sig. Farið var yfir alla helstu hluta Pro línunnar og útskýrt hvernig ýmislegt var hugsað og hannað. Svo fengu allir smá Hands-on með mann frá midas í kallfæri ef manni vantaði eitthvað.
Ég var á CMDU námskeiðið, sem er “User training” en einnig fóru sumir á CMDSE, sem er fyrir “System Engineer” þar sem farið er nánar í uppsetninu, troubleshooting o.fl. og er ætlað fyrir Eigendur og umsjónamenn.