Nei, ekki fá þér svona húðflúr. Þú munt sjá mikið eftir því eftir nokkra mánuði/ár. Ég get ábyrgst það. Ef að þú ætlar að fá þér húðflúr, þá er best að finna eitthvað sem að hefur mikla merkingu fyrir sjálfan þig, eitthvað sem að þú ert viss um að þú munt ekki sjá eftir að fá og eyða hundruðum þúsunda í að láta fjarlægja þegar að þér finnst það einfaldlega ekki eins “kúl” og þér fannst þegar þú varst táningur.
Þegar þú ert búinn að finna hið fullkomna húðflúr fyrir sjálfan þig, bíddu þá í að minnsta kosti hálft ár. Ef að það hefur enn jafn mikla merkingu fyrir þér og þér finnst það ennþá þess virði að fá það, endilega fáðu þér það.