Reyndar þá er þetta ekki mynd af því.
Spoilerar úr leiknum framundan:
Einzbern fjölskyldan hafði tekið þátt í öllum 4 stríðunum á undan sem ein af þremur stofnenda fjölskyldum stríðsins. Þeim hafði enn ekki tekist að uppfylla það kraftaverk sem að fjölskyldan hafði leitast eftir árhundruðum saman og eftir að maðurinn sem að þau réðu til að vinna stríðið fyrir sig í fjórða stríðinu sveik fjölskylduna, ákvað hún að ekki væri hægt að leita til fólks fyrir utan fjölskylduna í þessum málum.
Því gerðu þau hinn fullkomna Meistara og fullkomna Þjón tilbúna fyrir fimmta stríðið.
Þau bjuggu til Iriya, homunculus, sem að hafði það eitt hlutverk að vinna stríðið fyrir Einzbern fjölskylduna. Berserker var kallaður tveimur mánuðum áður en að hinn heilagi kaleikur var kallaður í heiminn, og var hann því ekki umvofinn galdramætti kaleiksins, heldur aðeins hennar Iriya.
Jafnvel þó að hún hafi verið öflug, þá er það að halda Berserker með aðeins hennar eigin krafti það sama og að stela lífi hennar frá henni smá saman. Hver einasta hreyfing sem að Berserker gerði, hversu lítil sem hún var, var meira en nóg til að fá hana til að öskra af sársauka. En til að þjálfa hana fyrir stríðið framundan var hún meðal annars skilin eftir í miðjum skóginum um miðjan vetur fyrir hungruð dýrin sem að þar búa. Til að lifa af þurfti hún að reiða sig á Berserker, það eina sem hún hafði.
Það var margt annað sem gert var við hana til að þjálfa hana, og er þetta aðeins pínulítill partur af sögu hennar sem er mjög sorgleg en kraftmikil. Þessi mynd er einmitt úr skóginum fyrrnefnda, en við skulum ekki fara lengra út í það.