Ég er ekki mikið fyrir að dæma fyrirfram eða þegar eitthvað er bara nýbyrjað, heldur gef ég hlutunum oftast séns, en ég er bara ekki nógu þolinmóð með manga bækur. Ef þær fanga mig ekki í fyrstu bók, eða ef það er ekki einhver karakter í henni sem ég elska, þá nenni ég ekki að halda áfram. (Ég reyndi með Kare Kano, en ég gafst upp. Ansi leiðinlegar bækur það :/) Ég heldur vil einhvern veginn ekki þurfa að lesa 10 og hálfa bók (sem er 75% af Love Hina… held ég) bíðandi eftir að mér líki við þær. Þá eru þær bara ekki þess virði…
Þetta eru samt örugglega ágætis bækur, en þær eru bara ekki alveg fyrir mig.
Allt sagt með hálfri virðingu.