Þegar ég hef tugi annara sería til þess að horfa á og byrja svo gott sem STRAX að vera skemmtilegar (tekur ekki 18 þætti eins og Bleach) þá get ég ekki sagt annað en að ég vil kjósa þær fram yfir langdregið efni sem verður ekki gott fyrr en eftir 18 þætti og er með fillers frá þætti 60 og upp í þátt 110 eða svo.
Fyrir utan það að allt frá fyrsta þætti þá þoldi ég ekki aðalpersónuna. Og ef maður hatar aðalpersónuna… þá ætti maður helst ekki að pína sig í að horfa á restina. Ég meikaði fimm þætti, en ekki meir.
Og já, ég kalla suma hluti drasl þó svo að ég meini það ekki per se, heldur nota ég orðið til þess eins að pirra aðra.
En þegar við erum að tala um Bleach, hins vegar, þá lít ég á það sem alvöru drasl. Og þar við situr.