Í fyrsta lagi eru nokkur ár síðan leikurinn kom út, að ég held, þannig það gæti reynst erfitt fyrir þig að finna hann. Í öðru lagi er hann á japönsku og það er ekki til nein þýðing á honum, þannig þú myndir væntanlega ekki skilja neitt í honum heldur. Í því tilviki er kannski lítil ástæða fyrir þig að sækja hann.
Svo var ég kannski ekki alveg að segja satt þegar ég sagði að hann væri fjölskylduvænn.