Ég mæli eindregið með því að þú bíðir í 6 mánuði áður en að þú færð þér tattoo, sérstaklega þegar að það er teiknað af einhverjum ókunnugum aðila af internetinu sem hefur kannski ekki mikla reynslu af teikningum. Þetta á sérstaklega vel við ef að þetta er einhver skyndiákvörðun hjá þér.
Ef að þér finnst þetta tattoo ennþá góð hugmynd eftir 6 mánuði, þá eru mun meiri líkur á því að þú munir ekki sjá eftir því að hafa fengið þér þetta tattoo þegar árin eru nokkur liðin.
Það hafa margir farið flatt á þessu og flestir sem hafa tekið þessu ráði sjá ekki eftir því, enda eru húðflúr eitthvað sem að þú hefur á líkamanum það sem eftir er af lífi þínu, jú, það eru til aðferðir til að fjarlægja þau, en það er mjög dýrt og skilur eftir sig ör.