Þó að þessar seríur séu góðar, þá er ekki sniðugt að alhæfa!
Ég er sammála því að Juuni Kokki sé með því besta, og Azumanga er hátt á mínum lista (auðveldlega með þeim 10 hæstu, sennilega í topp 5) en ég náði aldrei almennilega að komast inn í Cowboy Bebop. Ég neita því hins vegar ekki að það er mjög vel gerð sería, og hver sá sem neitar því er augljóslega ekki með höfuðið í lagi, en hins vegar er það full mikið að alhæfa um þessi mál og kemst Cowboy Bebop því miður ekki upp á minn lista yfir meistaraverk svosem Juuni Kokki, Azumanga og annara.