Ég get fullvissað þig um að “X - The Movie” er algjört sorp. Gjörsamlega óskiljanleg enda verið að taka hluta úr miðri manga seríu (seinna anime sería líka) og gera 90 mínútna bíómyndin sem útskýrir nákvæmlega ekkert hvað er í gangi og þannig verður manni skítsama um atburðarrásina og persónurnar.
Hún er mjög flott í alla staði og með gott animation, en því miður var þessi mynd enn ein ömurlega léleg anime myndin sem var hype-uð til helvítis og hafði svo nákvæmlega ekki neitt til brunns að bera nema flott look. Algjör heiladauði.
X manga og anime seríurnar þykja þó góðar, hef tékkað á hvorugu.