Ég held að það hafi verið ég sem að hafi mælt með þessari taktík…
Núna ertu kannski loksins farinn að skilja hvernig það er að geta einhvað í þessum leik. Það Á að vera létt að spila með Man Utd! Sjáðu bara hvernig lið þeir eru með miðað við það að þú gerir ENGAR breytingar á liðinu þá ættirðu samkvæmt öllum standörtum að ná a.m.k 2sæti í deildinni.
Ég meina sjáðu hvernig liðið er í dag??? Það er ekki séns að það fara niður fyrir 2.sætið, þeir eru með eitt besta lið í heimi og miðað við hvernig þeir spila eiga þeir skilið að ná allavega 2.sæti.
Það sem er gaman við þennan leik er að taka lið sem að getur er rassgat og koma því upp, byggja allt upp frá grunni ekki bara still upp liði og ýta á Continue!!!!!!
Þegar þú ert farinn að spila með svoleiðis lið þá verðurðu feginn að það fann einhver til svona snildartaktík.
Þetta er ekkert svindl! Áttu við að allir sem að spili leikinn verði að spila 4-4-2 annars eru þeir að svindla?!?
4-1-4-2 er líka þrusugóð taktík ef að þú spilar hana rétt er það líka að svindla????
Ég verð bara að segja að ef að þú spilar með Man Utd og getur ekki náð meira en 3.sæti þá ertu einfaldlega lélegur í þessum leik og þannig er það bara. Prófaðu að taka við einhverju liði í t.d. 1.deild til að byrja með og sjá hvernig gengur (ég mæli með Crystal Palace, mjög skemmtilegt lið) og reyndu að gera þá að meistörum það er miklu skemmtilegra og svoldið erviðara en með Man Utd.
Það að þú vinnir næstum alla leiki með Man Utd er ekki svindl heldur raunverulegt líttu bara á deildina í dag búnir að tapa einhvað 7 leikjum (og það finnst Ferguson vera MJÖG mikið).