Nákvæmlega það sem þeir eru að segja hérna fyrir neðan, góður feeder club og svo er hægt að finna fría leikmenn.
Síðan er það nú þannig að þegar þú ert svona neðarlega þá eru leikmennirnir oft svipað lélegir hjá öllum liðum. Ég fór þá leið að fá mér gott æfingakerfi, fína þjálfara og 19-20 physio lækni til að halda þessum bestu leikmönnunum mínum heilum. Það breytti öllu og þá tókst mér að taka Vauxhall Motors upp um deild á fyrsta tímabili og þeim var spáð 22 eða 23 sæti, þannig að bakherbergið er algjör lykill.
Síðan er gott ef þú færð feeder club að passa að fá sóknarmann þaðan, það er ekki mikið um frambærilega sóknarmenn sem klára færin sín í boði í neðstu deildunum, mun auðveldara að fá varnarmenn og miðjumenn.