Hef spilað CM frá 99.
Man mjög lítið eftir 2 leikjunum sem voru á undan 01/02 sem hefur alltaf verið minn uppáhaldsleikur. Ég byrjaði tiltulega seint í honum og var allan tímann með sama save-ið, Barcelona til 2014, og hefur það verið mitt uppáhalds save núna í frekar langan tíma.
Annars var CM4 frekar gallaður þar sem þú gast svindlað með því að kaupa kallanna á 0 KR með því að bjóða þeim samning einhvernveginn, man þetta ekki alveg.
FM 05 var ágætur, spilaði FM 06 lítið sem ekkert, fannst hann ekkert voða skemmtilegur. Svo hefur FM 07 verið erfiðasti CM/FM sem ég hef spilað, hann er samt tiltulega skemmtilegur, en hef kannski ekki verið að gefa hverju save-i nógan tíma þar sem lengsta sem ég hef farið í honum er 2 og hálft tímabil.