Alltaf ef ég vinn ekki þá verð ég að skemma eitthvað, ég hef ekki tölu á því hvað ´ge er búinn að eyðileggja marga penna og þess háttar.
Ég verð svo reiður að það er ömurlegt, ég á eftir að eyðileggja í mér tennurnar því ég bít í gegnum hvað sem er, t.d. penna :P
Ég get eiginlega ekki lýst því hvað ég verð reiður, ég er með svo mikið keppnisskap að þegar ég skora þá fagna ég eins og ég hafi verið að skora sjálfur úrslita mark á Anfield :)
Þetta er eins af ástæðunum fyrir því að ég æfi ekki fótbolta, ég er ROSALEGA góður og er sannfærður um að ég væri í góðu liði á englandi núna ef ég hefði æft, en ég verð svo BRJÁLAÐUR þegar annað fólk en ég geri mistök að ég myndi lenda í nánast hverjum einasta leik í slagsmálum við mína samherja.
Og til að gera þetta enn lengra, þá þekki ég fullt af fólki sem nennir ekki að keppa við mig í neinu lengur, ekki einusinni ólsen ólsen, því ég er rosalega leiðinlegur sigurvegari og ótrúlega tapsár.