Já, ég er stjórnandi á tveimur stórum áhugamálum í viðbót og þar samþykki ég nokkrar á dag líka. Þetta er hins vegar eina áhugamálið sem svona lítið flæði er af myndum og ég verð eiginlega að vera sammála þér og segja að mér finnist þetta mjög skrítið einnig.. Ég bjóst við að það væru fleiri myndir.
En svo má kannski segja sem svo að það þarf auðvitað að senda screen shots ef maður ætlar á annað borð að senda mynd inn og enn þann dag í dag virðast margir vera í vandræðum með að kunna almennilega á það. A.m.k. fæ ég nokkrum sinnum í viku skilaboð þar sem ég er beðin um hjálp. :)