Allt í lagi þú færð svona 5 mínútur. Þessi leikur er sennilega sá best heppnaði hingað til. Það sem hefur verið að gerast með CM síðustu árin er að, þaða hafa í raun bara komið 4 leikir, CM 1 2 3 og 4, en á milli þeirra hafa komið SEASON, en 1. útgáfan af LEIKNUM er alltaf léleg, eða öllu heldur misheppnuð, fullt af nýjum hugmyndum og tilraunum sem virka ekki nógu vel eða hreinlega alls ekki. Þess leikur er hins vega samansafn af öllum viðbótum og þær virðast virka. Það helsta er ítarlegri tölfræði fyrir leikmenn, síðustu 10-20 leikur með allri tölfræði, ekki bara rating í leikjunum. Icon sem sýnir hvernig tölur breytast (hækka eða lækka) í 2D forminu er hægt að fá endursýningar á mörkum, í player-search hlutanum er búið að stja inn + og mínus á attributes aftur (vantaði gríðarlega í síðasta leik, það nennir engin að nota lyklaborð í svona leikjum)
og æfinga programmið er orðið skiljanlegt og mun ítarlegra. Annað er nánast eins en, eins og áður sagði virkar betur. Eftir að hafa spilað leikinn örlítið, (3-4 klst) sýnist mér líka liðin og leikmennirnir hafa batnað aðeins, skynsamari kaup og sölur, leikmenn vilja ekki fara til hvaða liðs sem er, var svo sem þannig áður en ef þú reyndir þá komu þeir yfirleitt á endanum og sumir menn eru ekki falir, (hef séð Aimar fara í lán til 2. deildar liðs). AÐ öðru leyti er leikur nánast eins og sá fyrri, fullt af smáatriðum sem er ekki hægt að telja upp, en núna virkar hann.
Að lokum þá mæli ég að sjálfsögðu að þú kaupir hann, þetta verður sennilega síðasta útgáfan af CM í þessari mynd, fyritækin eru að skilja og næst koma út 2 leikir.