Ok ég er núna heima og get komið með greinina sem ég hafði áður skrifað um þetta, njótið vel.
Hvernig er hægt að hækka sína stöðu í CM4? (Svindl)
Þetta er fyrir þá spilara sem langar til þess að geta byrjað í CM4 með hátt álit og geta fengið nánast hvaða starf sem er sem stjóri. Byrjaðu á að búa til nýtt save og saveaðu það strax og farðu út úr leiknum. Það sem þarf er forrit sem heitir HEX Workshop(hægt að finna það á Google.com) og er alls ekki verra að hafa smá kunnáttu á HEX eða það sem við á íslandi viljum kalla sextándakerfið. En það er samt ekki nauðsynlegt, bara betra upp á að skilja hvað á að gera. En allavega þegar í forritið er komið skal fara í það, fara svo í file->open og opna saveið þitt í leiknum. Þá færðu upp kóða sem þú líklega skilur ekki sem er í HEX, núna er spurningin, hvernig finnur þú sjálfan þig þarna?
Svar: Með því að leita uppi afmælisdaginn þinn. Þú ferð á
http://www.geocities.com/sun_9411/ og gerir afmælisdag þinn en fæðingarár verður að vera 1967 þar sem CM4 skilgreinir það alltaf sem fæðingarár hjá manni þó maður velji annað. Svo ferðu í Edit->Find og lætur leita eftir Hex Values, og setur í Value fæðingardaginn hjá þér í HEX(ert þá fæddur 1967), sem í mínu tilviki var 0301AF07. Hakaðu svo við Find All Instances og veldur OK. Þú finnur væntanlega fleiri en einn möguleika þarna. Þá er næsta málið að leita af þeim möguleika sem er sá sem heldur utan um upplýsingarnar um þig. Í mínu tilfelli var það þessi númer 3. En allavegana, þegar þú ýtir á tilfelli þá áttu að vinna afturábak. Hugsaðu þetta allt fyrir þér þannig að tvær tölur saman sé ein eining(þó það sé í raun og veru fjórar, ekki pæla í því). Teldu til baka að 21 einingum(þar sem hver eining eru tvær tölur) og þá ættiru að vera kominn að 50, ef það er ekki þá skaltu leita í öðru tilfelli úr listanum þínum og reyna aftur. Breytti þessari 50 í C8 og farðu í File->Save og saveaðu þetta sem eitthvað.cm4, dæmi mittsave.cm4.. ALLS EKKI savea þetta yfir savið sem þú varst að spila því í þegar maður editar HEX kóða er ALDREI öruggt að leikurinn virki eftir þetta og ef savið virkar ekki viltu geta haft backup af því. Svo ferðu í CM4 aftur og loadar upp savinu eftir að þú breyttir kóðanum og skoðaðu stattana af sjálfum þér, þeir eru flestir við 20 og þegar þú ferð að halda áfram leiknum muntu lenda í því jafnvel að lið sem vantar stjóra bjóða þér stöðuna þó þú hafir ekki einusinni sótt um. Það er einnig hægt þarna að edita eiginn afmælisdag svo fæðingardagurinn komi allavega rétt framm, á sama stað og þú editaðir þetta ability sem þú gerðir áður skaltu breyta HEX kóðanum af fæðingardegi þínum, getur farið aftur á síðuna sem ég gaf upp fyrir ofan og séð hvernig þetta á að vera rétt og skrifað eftir því. Sem dæmi, í stað 0301AF07 set ég í mínu tilfelli 0301C107.
Get reynt að svara einhverjum spurningum kannski, en athugið að ég er bara fiktari sjálfur :)