Rólegan æsing, þetta er líka bara BETA demo. Ég er mjög ánægður með það sem ég hef séð hingað til (er reyndar ekki búinn að spila 6 mánuðina til enda enþá).
Afhverju tekurðu það svona persónulega að ég spyrji um tölvuna þína? Það er grundvallaratriði þegar maður vill leysa tölvuvandamál að vita hvernig tölva það er sem hefur vandamálið.
Þú segir samt ekkert um hvernig tölvu þú hafir svo við verðum bara að gera ráð fyrir að hún uppfylli lágmarkskröfur. CM frýs alltaf segirðu? Alveg sama hvaða CM? Þá er augljóst að hér er vandamálið tölvan þín en ekki CM. Ertu með nýjasta DirectX? (9 eða frekar 8.1). Ertu með nýjustu driverana fyrir skjákortið þitt? Ég lenti í tómu veseni með CM00-01 þangað til ég uppfærði driverana fyrir skjákortið mitt.
Ef þér finnst vera lítið að gerast í leikjunum hjá þér þá er það bara þín skoðun, ég sé nóg af action og hef ekki heyrt neinn annað kvarta yfir því. Mögulega bara er liðið þitt og andstæðingarnir alltaf að spila varfærnislegan bolta? Eins og ég sagði, það á ekki að koma neinn texti þegar þú ert með extended view.