Ég og þrír vinir mínir eru cm fíklar eins og flestir aðrir hér og vorum að spila saman í gær. Ég var bara að stilla upp liðinu mínu í rólegheitunum en svo var eitthvað bras þegar ég var að setja varamarvörð í liðið. Síðan fór ég bara kæruleysislega í start game og var ekkert mikið að fylgjast með þegar allt í einu skora ég mark á 30 mínútu. Ég lít á skjáin til að sjá hver skoraði og sé að einhver Wright skoraði. Ekki kannaðist ég við hann og taldi þetta sjálfsmark en það stóð ekkert (og) svo ég kallaði á strákanna sem skildu ekkert en svo fékk ég á mig mark rétt fyrir hálfleik. Við hlógum mikið yfir því að GK hafi skorað og vorum að spá hvernig það gat gerst en við fundum það út í hálfleik
Í hálfleik skoðuðum við uppstillinguna og sáum að R. Wright markvörður var að spila sem striker en calaío strikerinn minn var búinn að standa í markinu allan tímann. Svolítið sjokk og enn meiri hlátur hjá okkur fjórum sem sýnir hversu miklu skemmtilegra er að spila cm með öðrum, þó að hitt sé líka gaman.