Ég skal búa til nett drull.
Svona í fyrsta lagi þá er dropi við miðja mynd ofarlega og þó að þetta hafi verið erfiðar aðstæður þá hefði verið fínt að losna við hann.
Það er kannski rétt að segja frá því að mér finnst þetta vera svona falleg mynd, ekkert slæmt við það.
En húsið eða bragginn sem stendur þarna bakvið klettana gerir myndina pínu dularfulla, sem mér finnst ekki passa við fegurðina. Þú hefðir klárlega átt að færa húsið.
Svo er það þarna neðst á myndini að það er eins og grein eða sina eða eitthvað sé að troða sér inná myndina, bara pínulítið, en það er spurning hvort það megi ekki croppa það burt.
Myndbyggingin er annar fín, það er kúl hvernig lækurinn flæðir í gegnum grjótið og vinslan er ágæt. Hefði samt mátt vera pínu bjartari ?
Svo hefði verið gaman að sjá sömu mynd tekna á aðeins styttri tíma, það hefði kanski komið betur út, ég veit ekki.
En þetta er svona mynd sem sýnir alveg að þú kannt þetta og veist hvað þú ert að gera, en á sama tíma er hún einhvernvegin ekkert sérstök. Kanski vantar einhvert object í miðja mind til að fullkomna bygginguna ?