Sko,
mamman og stelpan eru nýhættar saman þannig að það er pínu vandræðalegt andrúmsloft, á meðan hjásvæfa stelpunnar stendur vinstra megin við og mamman er að krossfesta hann með augunum. Stelpan hætti líka með honum útaf því að ljósmyndarinn bauð henni að gerast módel í París þannig að hún vill ekki horfa á hann af því að hann er að gefa henni ljótar handbengingar, en það sem hún veit ekki er að ljósmyndarinn sem stelpan er að horfa á er í raun bara að svíkja útúr henni peninga og er ekkert með opna módelstöðu í París. Mamman veit það en er ekki viss hvort hún eigi að segja stelpunni það þar sem hún sveik hana, en vill engu að síður ekki að hún verði seld í þrælahald þannig að hún veit ekki alveg í hvern fótinn hún á að stíga.