Ef ég skal segja skoðun mína á þessari mynd þá er hún þessi:
Vignettið efst á myndini stingur augun. Það á einfaldlega ekki heima þarna og gerir ekkert fyrir myndina, þú hefðir frekar átt að ramma hana inn með einhverju öðru.
Mér finnst bakgrunnurinn leiðinlegur og bokeh'ð ekki gera nógu mikið til að hafa áhrif á gæði myndarinnar. Svo finnst mér noisið í honum ekki heldur neitt áhugavert.
Forgrunnurinn er of ruglingslegur, það er of mikið um að vera. Fókusinn er á of mörgum stöðum.
En drengur, þú átt að geta nýtt þessa linsu mikið betur !