alls ekki. Bara eitthvað hýrt hlutfall.
(1+sqrt(5))/2
Getum líka skilgreint rununa A með stökin: {
a_1 = 0
a_2 = 1
a_n = (a_(n-2)+a_(n-1))
}
Sem þýðir að maður byrjar með 0 og 1, og fær síðan næstu tölu í runinni með því að leggja tvær síðustu saman.
0, 1, 1, 2, 3, 5, 8, 13, 21, 34, 55, 89, 144, etc.
Eftir því sem maður fer ofar í þessari runu nálgast hlutfallið milli samliggjandi talna umþb. 1,618, sem er kallað Þeta (eða Fí) og er talið vera eitthvað kúl.
(stundum einfaldað niður í 8/5, sem er 1,6)
Eða í einfölduðu máli:
þeta ~= 8/5 ~= (1+sqrt(5))/2 ~= 1,618
Þess má svo til gamans geta að (1+sqrt(5))/2 er önnur lausna einna af einföldustu annarsstigs jöfnum sem hægt er að búa til með heiltölu stuðlum.
þ.e. x^2-x-1=0
Þetta er satt að segja nokkuð spennandi, og jafnvelt smá merkilegt.