Þú mátt vera helvíti ánægður með þessa vél. Þetta er þrusu vél og á vonandi eftir að gagnast þér vel.
Það skiptir engu hvort vélin er 6-7 ára gömul, það er augað fyrir myndefni sem skiptir öllu máli og þá meina ég ÖLLU. Ég hitti mann um daginn sem er atvinnuljósmyndari og tekur mikið af myndum í tímarit ofl og hann er ný búinn að fá sér nýja vél. Áður var hann með 20D sem hann keypti nýja fyrir sennilega 5-6 árum og hefur skilað honum fullt af flottum myndum. Eina ástæðan fyrir skiptunum var sú að hann þurfti vél sem gæfi betri upplausn í STÓRAR myndir.
Vertu bara duglegur að taka myndir og æfa þig.
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.