Takk fyrir gagnrýnina. Himinn var yfirlístur frá upphafi, hann varð ekki svona við vinnsluna, og þar sem Ixusinn býður ekki upp á mikla stillimöguleika hefði verið erfitt að ná himninum betri.
Myndin var tekin í takmarkaðri birtu og þar sem ég notaði ekki flassið þurfti ég að halda henni grafkjurri til að myndin yrði ekki hreyfð, en það tekst sjaldan almennilega án þrífóts, þannig hún var ofurlítið hreyfð. Náði að fiffa það aðeins, en þetta kynni að útskýra gæðavandamálin sem fólk talar um.
Annars var þetta bara skyndimynd, var að aðstoða félaga minn í stuttmyndagerð og tók þessa bara rétt áður en við fórum. En mér fannst myndin sjálf skemmtileg og er ánægður með niðurstöðuna þrátt fyrir fyrrnefnda galla.
Takk fyrir að skoða, og auðvitað hafa allir rétt á sínum skoðunum, og er ég sammála þér í flestu.